09.08.2008 00:52:15 / helga73
Jæja gott fólk nú er maður bara farin að taka myndir og er
búin að gera sér síðu inná Flicker en ég læt ykkur vita
netfangið þegar ég verð búin að gera þetta allt saman og
rétt netfang er komið í gegn þá geti þið skoðað myndirnar
mínar. http://www.flickr.com/photos/helga73/
Kveðja Helga H.
»
30.05.2008 17:14:04 / helga73
Já ég hef ekki verið dugleg að blogga undafarið það er bara búið að vera rólegt hjá mér annars átti Gulli elskan 40 ára afmæli þann 24 maí en það var ekki haldið uppá það en fólk var velkomið í kaffi ef það vildi en því var ekki formlrga boðið. Það veit það að hér er alltaf opið hús og alltaf velkomið að kíkja í kaffi Stefanía mákona kom og pabbi og þá er það upptalið en annars en þetta allt saman mjög rólegt hjá okkur hér í Vestursíðuni er ekki alverg í stuði
fyrir langt blogg núna ætla að kveðja að sinni vonandi geingur betur næst.
Kveðja Helga hetja.
»
04.05.2008 21:49:42 / helga73

Jæja nú er komið að því að blogga smá vegis
Nú er skólin búin hjá mér og bara eftir að ná í verkefni og fá einkunirnar ég er mjög ánægð með afragsturinn svona ef ég á að vera með einhverja skoðun á þessu en þetta kemur allt í ljós 21 maí því þá fer ég og næ í þetta allt saman en þanga til verður maður bara að bíða en þessa dagana er ég að aðstoða við að undirbúa ferminguna hennar Brynju hans Heimirs bróðirs hún á að fermast 10 maí og ég er að græja gestabókina fyrir hana og svo fer ég í það að græja tertur svona þegar nær dregur fermingu svo er Gulli búin að fara og mynda fermingamyndirnar af henni í stúdíóinu og þær tókust mjög vel og allir ánægðir en ég ætla að drífa mig í kúlubað en eitt áður já ég var næstum því búin að gleima að segja ykkur frá því að ég fór með Gulla og strákunum í keilu í dag og þetta var frábært ég var búin að gleima hvað þetta var gaman en staðan var þannig að Halldór var í 1 sæti ég í 2 sæti Viktor í 3 sæti og Gulli rak lestina og var í 4 sæti það verður ekki langt þanga til það verður farið aftur þetta var frábært en nú verð ég að hætta áður en baðið verður orðið kalt kveð að sinni læt í mér heira síðar Helga hetja.
»
18.04.2008 17:15:01 / helga73
Steingeitin
Árstími Steingeitarinnar markar ákveðin kaflaskil sem verða í náttúrunni um vetrarsólstöður. Þá er nóttin lengst og dagurinn stystur á árinu. Upp frá því fer birta vaxandi. Steingeitin er því frumkvæð og er merki byrjunar og vaxandi jákvæðrar uppbyggingar.
Jarðbundin
Steingeitin er jarðbundin og leggur áherslu á að ná áþreifanlegum árangri og standa traustum fótum í tilverunni. Ef hún ákveður að gera eitthvað vill hún láta athöfn fylgja orðum. Hún er raunsæ og sér heiminn eins og hann er, en er tiltölulega laus við óskhyggju.
'Byggingameistari'
Steingeitin er að öllu jöfnu varkár og skipulögð og vill byggja upp lið fyrir lið, leggja einn stein í einu og treysta undirstöðu hans áður en hún leggur þann næsta. Hún reynir að ná samfellu í líf sitt og störf, byggja á því sem er fyrir og bæta það og auka. Hún er því lítið gefin fyrir róttækar breytingar og telst frekar íhaldssöm. Steingeitin vill halda fast í gömul gildi og virða siði og hefðir fortíðarinnar. Ekki má misskilja orðið íhaldssemi, en það sem átt er við er að hún er íhaldssöm á sína eigin siði og reglur, það sem henni sjálfri þykir kært. 'Rokkarinn' í Steingeitinni heldur fast í greiðsluna þó að hann sé kominn nálægt sextugu. Hann er íhaldssamur á sitt.
Formfesta
Hin dæmigerða Steingeit er alvörugefin. Steingeitin er kraftmikið merki, en á til feimni og hlédrægni. Oft eru viðbrögðin þau að leggja áherslu á grín, sem á þá að fela sterka sjálfsmeðvitund. Steingeitin er einnig varkár, yfirveguð og formföst. Sjálfsagi skiptir hana miklu og henni er illa við að missa stjórn á skapi sínu. Hún heldur því oft aftur af sér og sýnir sjaldan reiði. Hún á frekar erfitt með að sleppa fram af sér beislinu.
Ábyrgð
Sterk ábyrgðarkennd einkennir Steingeitina. Hún reynir að leysa hvert það mál sem hún tekur að sér af kostgæfni, en sterk fullkomnunarþörf gerir það að verkum að henni finnst sjaldan sjálfri að það sem hún gerir sé nógu vel af hendi leyst. Sjálfsafneitun er einnig sterkur þáttur í fari hennar og hún fórnar sér oft eða afneitar eigin löngunum vegna ábyrgðar, vinnu eða annarra utanaðkomandi þátta. Oft er sagt, bæði í gamni og alvöru, að Steingeitin beri áhyggjur heimsins á herðum sínum.
Árangur
Dæmigerð Steingeit er að öllu jöfnu dugleg og vinnusöm. Hún vill ná árangri og búa vel. Ytri aðstæður skipta hana miklu, svo sem að vel sé búið að heimili hennar, fjölskyldu og ástvinum. Hún leggur því iðulega mikið á sig til að koma þessum málum vel í höfn.
Stjórnsemi
Oftast er sagt að Steingeitin sé metnaðargjörn og stjórnsöm. Sjálf neitar hún þessu hins vegar iðulega og segir að hún sé einfaldlega beðin um að taka á sig ábyrgð og sé ýtt upp á við af öðrum. Steingeitin segir oft að hún hafi engan áhuga á því að stjórna, hún vilji einungis hjálpa og viti stundum betur en aðrir hvernig best sé að vinna ákveðin verk. Eins og með orðið íhaldssemi, er rétt að útskýra orðið metnað. Margir rugla metorða- og metnaðargirni saman. Staðreyndin er sú að sumar Steingeitur eru metorðagjarnar, en flestar eru þær metnaðargjarnar, í þeirri merkingu að vilja gera vel það sem þær taka að sér.
Skipulagning
Til að viðhalda lífsorku sinni og endurnýja hana þarf Steingeitin að búa við öryggi og reglufestu. Hún verður óróleg ef jarðsambandið er lítið eða mál hennar í óvissu og lausu lofti. Hún þarf að búa við ákveðið skipulag og vill móta líf sitt með hliðsjón af langtímaáætlunum. Hún skipuleggur því oft fram í tímann og vill að því skipulagi sé framfylgt. Steingeitin þarf að hafa vaðið fyrir neðan sig.
Gamla geitin
Oft er sagt að Steingeitin sé það merki sem eldist hvað best. Sagt er í gríni að hún fæðist gömul og leiðinleg, en kveðji ung og skemmtileg. Vegna sterkrar fullkomnunarþarfar og sjálfsgagnrýni er fyrri hluti ævinnar erfiðari, en þegar hún eldist og nær tökum á viðfangsefnum sínum þá verður þetta allt léttara. Að lokum má svo geta þess að Steingeitin býr yfir geysilegri seiglu og þó að hún virðist dauð og tröllum gefin, rís hún iðulega upp aftur og nær að endurheimta það sem virtist glatað.
Þegar talað er um 'Steingeitina' og 'Steingeit', er átt við þá sem fæddust þegar Sólin var í Steingeitarmerkinu. Þeir einstaklingar sem fæddust á þeim árstíma hafa 'hjartað' í þessu merki, eða grunneðlið og lífsorkuna.
Staða Tunglsins í merki segir til um tilfinningar, staða Merkúrs um hugsun, Venusar um ást og samskipti, Mars um framkvæmdir, Rísandi merkis um framkomu og staða Miðhimins um (þjóðfélags)markmið. Hver einstakur maður er í nokkrum stjörnumerkjum og þess vegna eru gerð stjörnukort, en ekki bara fjallað um stjörnumerkin.
»
18.04.2008 17:00:56 / helga73
Það er nauðsinlegt að hlæja öðru hvoru hehehehe........
Funniest Home Videos part 63
»
18.04.2008 16:04:15 / helga73
»
04.04.2008 15:01:17 / helga73
Jæja ætli ég verði ekki að láta í mér heira eða bara svo fólk haldi ekki að ég sé bara dauð eða eitthað þvílíkt nei ég segi svona.
Síðustu vikur og dagar eru búnir að vera fínir eða eins fínir eins og hægt er að segja það. Um páskana fór fjölskildan til Reykjavíkur í fermingu, skírn og afmæli og hún tengdamamma kom til landsins sem var indislegt
til að vera við fermingu hjá barnabarni sínu henni Bryndísi Ýrr dóttir hans Ingvars og svo kom Viddi og fjölskilda til landsins til að skíra prinsessuna sína og héldu uppá afmælið hennar Andréu í leiðini sem var 6 ára og er að fara í skóla í haust en jæja ætla að hætta þessu bulli er að fara að klippa og lita svo ég heiri í ykkur síðar bæ bæ í bili.
Helga hetja
»
03.03.2008 22:15:51 / helga73
Jæja þá er komin tími til að blogga örlítið.
Föstudagur 22, feb.
Eins og sumir vissu þá skrapp ég til Barcelona með vinnuni hans Gulla PAlfreðson í fimm daga og þessi ferð var algjör snild farið var frá Ak um hádegi og komið til Rk 50 mín seidna þar beið okkar rúta sem flutti okkur á Keflavíkurflugvöll farið var í loftið kl:16,35. Á leiðinni í flugvélinni var mikið drukkið og sungið og allir skemmtu sér mjög vel. Lent var í Barcelona kl:21.10.þaðan var farið með rútu á hótelið sem við gistum á.
Laugardagur 23, feb.
Ég og Gulli vöknuðum Kl:7,00 og fórum í morgunmat og eftir það var haldið í skoðunnar ferð sem var á okkar eigin vegum hitinn var 22 gráður og þennan dag var margt skoðað en ég nenni ekki að telja það upp. Um kvöldið var farið út að borða með öllu liðinu og ég hef aldrei fengið eins marga og góða forrétti eins og þarna þeir voru aðeins 6 talsins og svo var aðalréttur og eftirréttur í resstina en þetta er siður hjá spánverjum. Eftir allt þetta át var farið á pöbb og fengið sér einn öl og farið svo heim á hótel að sofa til að safna kröftum fyrir næsta dag.
Sunnudagur 24, feb.
Ræs kl:8,00 og beint í morgunmat og svo var haldið í bæinn og skoðað og myndað. Þessi borg hefur margt upp á að bjóða fyirir túrista eins og okkur Íslendingana sem búum á þessu klakarassgati
. Um kvöldið var farið á fótboltaleik með Barcelona og levante.
Þvílík upplifun að fara á svona leikvang það er eiginlega ekki hægt að lísa því það eina sem ég get sagt að þetta var æðislegt.
Mánudagur 25, feb.
Mánudagurinn fór bara í það að rölta um á Römblunni sem er verslunargata spánverja og þar vorum við Gulli þar til Kl:17,00 og þá vorum við búin á því og tókum leigubíl heim á hótelið og kvíldum okkur aðeins og eftir smá kvíld fórum við og fengum okkur Kaffi og særabauð á kaffihúsi sem var í gaungufæri frá hótelinu. Kl:20,00 um kvöldið kom rúta og keirði okkur á flugvöllinn. Þegar var komið á Keflavíkurflugvöll kl:3,00 var okkur keirt á BSI þá var klukkan orðin 4 um nóttina og biðum við eftir að komast í flug til Akureyrar um morgunnin. Áttum við flug kl:10,30. Klukkan 7:00 gafst ég upp á biðinni og varáhveðið að hringja í Ingvar og Arndísi og mátum við koma og fá okkur kaffi og hvíla lúin augu í smá stund sem bjargaði miklu því maður var alveg búin af bateríunum eftir þessa ferð
en þegar heim var komið var farið beint til Stefaníu og Guðmundar og beðið eftir að Halldór og Viktor kæmu heim úr skólanum maður var farin að sakna þeirra þó þetta hafi ekki verið langur tími sem maður var í burtu frá þessum elskum. þegar komið var í Vestursíðuna var farið að sofa
. Þetta var mjög skemtileg ferð en svolítið erfið.
Farið endilega og skoðið myndir frá ferðinni inná Myndir og þar er mappa sem heitir Barcelona. jæja ég verð víst að fara að sofa það er skóli á morgun bæ bæ í bili
.
»
16.02.2008 19:23:48 / helga73
Já þannig er mál með vexti að ég er komin með myspace síðu hvað verður að næst það er geinilega hægt að plata mig útí allt hehe
en hvað um það þá er svosum ekkert merkilagt að frétta af mér það gengur bara mjög vel í skólanum ég skar niður af honum var ekki að höndla þessi fög sem ég var í svo ég áhvað bara að taka tvö fög út Dönskuna og náttúrufræðina en ég er í sjónlistir 203 og hönnun og textil 203 það munar svo miklu að vera í smá uppá andlegu hiðina og svo eru þetta svo frábærir bekkir sem ég er í og mórallinn er svo góður sem skiptir öllu máli eða mér finnst það ég er bara ánægð eins og þetta er hjá mér. En svo við tölum um annað þá er ég á leiðini til Barcelona 22 febrúar EFTIR 6 DAGA og er að deyja úr spenningi það verður farið á fótboltaleik með Eiði Smára þetta verður geggjuð upplifun að fara á svona fótboltaleik
jæja ætla ekki að hafa þetta miki lengra að sinni heirumst síðar
Helga kveður að sinni.
»
09.02.2008 14:04:27 / helga73
»
07.02.2008 17:53:30 / helga73
Jæja þá er öskudagurinn liðinn
Ég vaknaði kl:7,00 og byrjaði á því að vekja orrmanna mína og gefa þeim morgunmat að því loknu hófust herlagheitin að mála liðið Stefán Hansen gisti hjá Halldóri og voru þrír hausar sem ég fékk að leika mér með í förðun og greiðslu hehe...
og leiddist mér það ekki ég málaði þá eins og pönkara og útkoman var bara með besta móti eða þeir voru mjög ánægðir með útkomuna á sjálfum sér. Að því svo loknu var brunað af stað og hafið upp raustn sína en áður en að því kom náðum við í Heiðmar hennar Öldu systir því Viktor og Heiðmar ætluðu að vera saman í liði og Halldór og Stefán saman. við byrjuðum að fara útí B Jensen og þar hlupu allir inn og sungu nokkur öskudagslög Þegar var komið út í bíl áhváðu þeir að vera bara allir saman í liði og gékk það bara mjög vel. Kl 11:30 fannst þeim vera nó komið og var áhveðið að fara bara heim og láta þetta gott heitta. Var afraksturinn hjá þeim bara nokkuð góður eða þegar var búið að skippta öllu namminu á milli þeirra var hver og einn með aðeins tvö og hálft kíló á mann manni verður bara óglatt. Þegar þessu var lokið fór ég í skólan og bullaði í hingi með stelpunum og okkur leiddist ekki við það
hehe....við vorum að blanda litaprufur og lita efni og þetta átti ekki að ganga upp hjá okkur ég og Brynja vorum saman í hóp og skemmtun okkur konunglega við þetta allt saman og að sjálfsögðu endaði þetta allt eins og í öllum þessum ævintírum og allir lifðu hamingjusamir til æfiloka hehe...
Jæja elsku krúttin mín ætla að fara að hætta þessu ruggli og gefa blessuðu börnum mínum að borða þess þarf víst líka.
ví ses bæbæ. Helga Hetja.
Halldór, Stefán og Viktor tilbúnir fyrir daginn Heiðmar missti af myndatökunni
.
»
04.02.2008 13:51:30 / helga73
Góðann dag góðir hálsar eða ég vona allavega að ykkar hálsar séu góðir því ég sit hérna heima með ömurlega hálsbólgu og læt mér leiðast. Hvernig er það á ekkert að fara að hæta að snjóa á þessu klakarasskati maður er bara komin með nó af þessum snjó eða það er allavega komið nó af ÞESSUM snjó eða það er mín skoðun á þessu máli ég veit ekki með ykkur hin en ykkur er velkomið að tjá ykkur um þannan veðurguð hér á síðunni minni takk
.
Þú ert rómantísk.
Þú elskar rómantík og vilt stunda kynlíf og vera innileg þegar stemmningin og augnablikið er rétt. Þú elskar kertaljós, ljúfa tónlist og góðan mat sem forleik. Það er ekki vafi á því að þetta skilur eftir góðar minningar í
lífi þínu. Þú veist hvernig, hvenær og hvar þú átt að gefa hinn fullkomna koss. En á meðan þú ert að plana eða bíða eftir þessum fullkomnu kossa-augnablikum þá missir þú af sjálfkrafa augnablikum til ásta og kynlífs.
Mundu að sjálfkrafa augnablik leiða til rómantíkur líka. Sturta snemma að morgni þegar þið eruð bæði að verða of sein til vinnu og annað slíkt getur kynnt upp ástarbálið. Þú þarft ekki að stökkva á hann í hvert skipti sem
þú ert í rétta skapinu en kossar og knús, jafnvel þegar þig langar ekkert rosalega til þess, getur gert ykkur nánari. Prófaðu líka að kyssa hann þegar hann á síst von á því. Líkur eru á því að hann verði skemmtilega hissa og ný ástríða kvikni í sambandinu.
»
01.02.2008 20:50:00 / helga73
Jæja þá er bara komin helgi tíminn líður svo hratt að maður nær ekki að fylgjast með hvaða dagur er ja svona er þetta maður er bara tíndur en hvað um það þá er svo sem ekkert að frétta hjá mér nema það að ég fór í klippingu í dag maður þarf nú að halda sér sætri fyrir mannin og sjálfa sig að sjálfsögðu. Ég kíkkti í kaffi til Öldu systir við spjölluðum í smá tíma og þá var klukkan orðin svo mart að ég þurrfti að ná í Gulla í vinnuna en annars hef ég ekkert merkilegt að segja svo ég ætla að kveðja að sinni
bæ bæ í bili dúllurnar mínar.
»
31.01.2008 22:28:53 / helga73
»
31.01.2008 18:38:16 / helga73
Já það er sko alveg hægt að gleima sér yfir þessu öllu saman.
Er búin að vera að setja inn myndir og ég bara hreinlega missti mig alveg við það .
Endilega skoðið afraksturinn hjá mér!!!
»